Ársrit 1940 - PDF to Chatbot
Published on Sep 05, 2026
Description:
FERÐIR
BLAÐ FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR
1 tbl Marz, 1940. 1. árg.
Landslagsmyndir
í fjölbreyttu úrvali
frá ýmsum fegurstu stöðum á landinu.
Edvard Sigurgeirsson,
ljósmyndari.
Hafnarstræti 106. „Akureyri. Sími 151.Ódýrustu flutningarnir
á vörubílum,
verða nú, sem áður,
með bifreiðum vorum.
R
Bifreiðastöðin Bifröst,
Akureyri. Sími 244.FERÐIR
BLAÐ FERÐAFÉLAGS AKUREYRAR
1. tbl. Marz, 1940 1. árg.
Ávarp.
Góðir Félagar í F. F. A.
Þið fáið nú heim til yðar svolítið .blað. Stjórn félagsins
hefir löngum þótt leitt að geta ekki náð til yðar, en misjafnlega gengið með fundahöld, og vill því ræða við yður
á þenna hátt, því nauðsynlegt er starfsemi félagsins, að
allir meðlimir meðlimir þess geti fylgst með henni. Nú
gafst okkur tækifæri að senda þessa kveðju um leið og
ferðaáætlun sumarsins er send út. Væntum við þess að
nýbreytni þessari verði vel tekið, enda þótt við ekki getum látið blaðið hafa svo mikinn fróðleik að færa, sem
æskilegt hefði verið. Ekkert er ákveðið um það, hversu
oft blaðið kemur út, það er háð fjárhag félagsins, en okkur langar til að það gæti orðið einu sinni til tvisvar á ári.
Þetta fyrsta blað er sýnishorn þess hvert efnið verður,
þ. e. fréttir frá félaginu, umræður um viðfangsefni félagsins, og þegar unt er, stuttar leiðarlýsingar. Annars er aðaltilgangur blaðsins að vera tengiliður milli félaganna, og
minna þá á það og störf þess. Félagatalan er nú 300, en
hún þarf enn að aukast, svo að því vaxi starísmegin. Á
næsta ári verður það 5 ára. Ef allir félagsmenn legðu sig
fram væri þeim kleift að auka félagatöluna um 100 á
þessu ári, og væri til fallið að færa félaginu þá afmælisgjöf. Stjórn Ferðafélags Akureyrar.8. blaðsíða {Ferðir
fjall eða til Dettifoss. Heim verður ekið að kveldi
þess 16. og 17. júní.
9. ferð, 22—23. júní. Hafrárdalur.
Farið á hestum og gist við Arnarstaðasel. Unnið að
vegagerð í 6 klukkustundir. Á heimleið farið um hjá
Hólavatni og Hólum.
10. ferð, 30. júní. Dýjafjallshnjúkur — Svarfaðardalur.
Ekið að Fornhaga og gengið á Dýjafjallshnjúk. Einnig verður ekið í Svarfaðardal.
11. ferð, 6—7. júlí. Hafrárdalur.
Ekið og hjólað að Arnarstaðaseli. Unnið að vegagerð.
12. ferð, 13— 14. júlí. Garðsárdalur.
Ekið að Garðsárgili. Gengið suður fjöllin austan
Garðsárdals og heim um Gönguskörð.
13. ferð, 13—18. júlí. Austurland. Sumarleyfisferð.
Helztu viðkomustaðir verða: Ásbyrgi, Dettifoss,
Möðrudalur, Eiðaskóli, Reyðarfjörður, Eskifjörður og
Fljótsdalshérað.
14. ferð, 20.—21. júlí. Hafrárdalur.
Vegagerð.
15. ferð, 27 —28. júlí. Fljót.
Ekið til Dalvíkur, þaðan farið á hestum um Reykjaheiði og Lágheiði í Fljót.
16. ferð, 3.—5. ágúst. Herðubreið.
3. ágúst. Ekið að Péturskirkju. 4. ágúst. Ekið í Grafarlönd eða Herðubreiðarlindir. Gengið á Herðubreið. 5.
ágúst. Haldið heim.Ferðaáætlun
Ferðafélags Akureyrar 1939.
Félagar í Ferðafélagi Akureyrar.
Ferðaneindin þakkar gott samstarf á liðna árinu og
væntir vaxandi þátttöku og áframhaldandi ánægju á ferðum félagsins.
Það er augljóst að þeim fjölgar stöðugt, sem meta ferðalög mikils, — einkum gönguferðir til fjalla. Á þessu áliti
byggist það, að hefja ferðastarfið snemma árs og hafa
flestar ferðirnar að nokkru gönguferðir. '
Nefndin hefir í samráði við stjórn félagsins ákveðið, að
stofna til eftirtaldra ferða á þessu ári:
1. ferð. 19. marz. VAÐLAHEIÐI.
Ekið að Varðgjá. Gengið að vörðunni á háheiðinni. Þaðan suður í Bíldsárskarð og niður að Kaupangi.
2. ferð. 2. apríl. VINDHEIMAJÖKULL.
Ekið að Lögmannshlíð. Gengið á jökulinn og niður að
Útgarði.
3. ferð. 16. apríl. KERLING.
Ekið að Finnastöðum í Eyjafirði. Gengið upp Finnastaðadal, þaðan norður á Kerlingu og heim Glerárdal með
viðkomu á Skíðastöðum.
4. ferð. 30. apríl. STAÐARBYGGÐARFJALL.
Ekið að Öngulstöðum. Gengið norðan á fjallið og niður
.að Munkaþverá.
5. ferð. 7. maí. BÓNDI.
Gengið á Bónda, Krumma og Súlur.
6. ferð. 18. maí. STAÐARHNJÚKUR.
Ekið að Reistará. Gengið upp Reistarárskarð, suður
fjallið, á Staðarhnjúk og niður að Möðruvöllum.7. ferð. 29. maí. DJÚPIDALUR — ÖXNADALUR.
Hringferðir í tveimur hópum. Ekið að Stóradal í Djúpadal. Gengið vestur Branda.
Ekið að Gloppu í Öxnadal. Gengið austur Gloppuskarð.
Mætast þá hóparnir á fjallinu.
Leið þessi liggur um eitt hið fegursta byggðarlag landsins, um þröngan þverdal, yfir fjallgarð, þar sem víðsýni
<“
er mikið og um dalinn „þar sem háir hólar....“.
8. ferð. 4. júní. HRÍSEY.
Ekið að Litla-Árskógssandi. Farið á bát til eyjarinnar.
Gengið um eyna, út að vita og að laugunum.
9. ferð. 11. júní. SÖLVADALUR.
Ekið að Núpufelli. Farið á hestum um Sölvadal upp á
fjöll. Þessi ferð er meðfram farin til að athuga leið, er fær
væri bifreiðum, suður á Sprengisand.
10. ferð. 17—18. júní. DETTIFOSS — ÁSBYRGI.
Hringferðir í tveimur hópum. Ekið að Einarsstöðum í
Reykjadal. Þar skiptast leiðir. Aðrir aka austur í Mývatnssveit, um Mývatnsfjöll að Dettifossi og ganga niður í
Hólmatungur. Hinir aka um Reykjaheiði til Ásbyrgis og
fara á hestum upp í Hólmatungur, þar sem þeir mæta
hinum og afhenda þeim hestana.
Allir er sjeð hafa, róma fegurð og tilbreytni leiðarinnar meðfram Jökulsá frá Ásbyrgi að Dettifossi.
11. ferð. 25. júní. HÖRGÁRDALUR — SKÍÐADALUR.
Hringferðir í tveimur hópum. Ekið að Fornhaga. Gengið
um Tungudal á Dýjafjallshnjúk og niður í Skíðadal.
Ekið í Svarfaðardal og Skíðadal að Klængshóli. Gengið
þaðan á Dýjafjallshnjúk og niður að Fornhaga.
12. ferð. 1—2. júlí. VATNAHJALLI.
Ekið að Hóisgerði, fremsta bæ í Eyjafirði. Gengið á
Vatnahjalla og athugað hvort fært væri að gera akfært
suður á Sprengisand.13. ferð. 1—9. júlí. SUÐURFERÐ.
Gist verður á þessum stöðum: Í Vatnsdal, við Hvalfjörð,
í Reykjavík, Skálholti, Kerlingarfjöllum, við Hvítárvatn,
Þingvöllum og heim um Kaldaaal.
Þátttakendur gefi sig fram, eigi síðar en 20. júní n. k,,
við formann ferðanefndarinnar, er gefur nánari upplýsingar um ferðina.
14. ferð. 8—9. júlí. FLJÓT.
Ekið til Dalvíkur. Þaðan farið á hestum um Reykjaheiði og Lágheiði í Stýflu í Fljótum.
15. ferð. 15—16. júlí. MÝVATNSSVEIT.
Ekið til Reykjahlíðar. Skoðað nágrennið, hin nýja
brennisteinsverksmiðja og hverirnir. Á heimleiðinni gengið frá Helluvaði niður Laxárdal að Birningsstöðum. Þaðan
ekið að Laxárfossum og skoðað hið nýja raforkuver Akureyrar.
16. jerð. 22-23 „júlí SVARTARKOT.
Ekið austur yfir Skjálfandafljót hjá Goðafossi og upp
Bárðardal að Svartárkoti og gengið þar um nágrennið.
17. ferð. 23. júlí. KAUPANGSSVEIT.
Ekið að Garðsárgili. Þaðan farið að Fífilgerði og skoðuð
blóma- og trjáræktin þar. Síðan skoðað land skógræktarfélags Eyjafjarðar hjá Varðgjá.
18. ferð. 29.—31. júlí. HERÐUBREIÐARLINDIR.
Ekið austur Mývatnssveit og hina fornu póstleið að
Jökulsá á Fjöllum (gist í Péturskirkju) og suður með
Jökulsá í Herðubreiðarlindir.
19. ferð. 29. júlí til 2. ágúst. ASKJA.
Ekið í Herðubreiðarlindir (sjá 18. ferð). Þaðan áleiðis
til Öskju svo langt sem fært reynist og gengið að Öskjuvatni.20. ferð. 12.—13. ágúst. HÖFÐAHVERFI.
Farið á hestum akveginn austur í Steinsskarð. Þaðan
norður í Hrossadal og um Dalsmynni, í Höfðahverfi. Til
baka um Laufás og inn Svalbarðsströnd.
21. ferð. 19 —20. ágúst. ÓLAFSFJÖRÐUR.
Ekið til Dalvíkur. Gengið yfir Dranga í Ólafsfjörð og
til baka um Grímubrekkur.
22. ferð, 27. agúst. YSTAFELI
Ekið að Ystafelli. Gengið austur yfir fellið að Barnafossi og suður að Fremsta-Felli.
23. ferð. 3. september. TRÖLLAFJÖLL.
Ekið að Útgarði. Gengið á Tröllafjöll og heim um
Skíðastaði.
24. ferð. 17. september. HRAUNSRÉTT.
Ekið að Laxárfossum og Hraunsrétt.
Jafnan verður reynt af hafa til afnota í ferðunum tjöld
og hitunartæki og veita ferðafólkinu heitt vatn eða kaffi
á matmálstímum. Á þann hátt er félögunum fært að
ferðast, án þess að kosta miklu til, öðru en fargjaldinu og
nesti að heiman.
Munið að vera vel búin í ferðunum, einkum til fótanna og hafa brodda og staf ef um fjallgöngur er að
ræða. Hafið ætíð hentugt nesti og drykkjarílát.
Gleymið aldrei, að fyrsta skilyrðið til þess að skemta
sér, er að vera skemtilegur sjálfur, og vera prúður og
hirðusamur í allri umgengni.
Farmiðasala verður auglýst sérstaklega fyrir hverja
ferð.
Vinsamlegast.
Akureyri Í. marz 1939.
Þorsteinn Þorsteinsson. Björn Þórðarson.
Armann Dalmannsson. Kjartan Sæmundsson.
Eðvarð Sigurgeirsson.
Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar. 1939.Ferðir) 9. blaðsíða
17. ferð, 3.—7. ágúst. Askja,
Ekið til Herðubreiðar (sjá 16. ferð). 4. ágúst. Gengið
austan Herðubreiðartagla til Dyngjufjalla. 5. ágúst til
Öskjuvatns. 6. ágúst. Niður í Suðurárbotna. 7. ágúst.
Til Svartárkots og heim.
18. ferð, 3—4. ágúst. Hafrárdalur.
Vegagerð.
19. ferð, 10.—11. ágúst. Þeistareykir.
Ekið um Reykjaheiði til Þeistareykja og gist þar.
Gengið austur að Vítum eða á Lambafjöll. Á heimleið komið að Laxárfossum.
20. ferð, 1/.—18. ágúst. Hafrárdalur.
Vegagerð.
21. ferð, 24—25 ágúst. Hraunsvatn.
Farið á hestum og reiðhjólum.
22. ferð, 31. ágúst. Hafrárdalur.
Vegagerð.
23. ferð, 14—15. sept. Vutnahjalli.
Könnunarferð.
Hver ferð verður auglýst síðar.
Vinsamlegast.
Akureyri, 18. febrúar 1940.
Þorsteinn Þorsteinsson. Kjartan Sæmundsson. Armann
Dalmannsson. Eðvard Sigurgeirsson. Jónas Hallgrímsson.16. blaðsíða | Ferðir
rr r
o
Frá félaginu.
Aðalfundur
F. F. A. var haldinn 23. jan. s. I. Var þar eins og að venju gefið
stutt yfirlit um störf félagsins á liðnu ári, lagðir fram reikningar og
kosin stjórn og ferðaneind. Úr stjórninni gengu Steindór Steindórsson og Þormóður Sveinsson, voru þeir báðir endurkosnir, en í stað
Björns Björnssonar frá Múla, sem fluttur er burtu, var kosinn Björn
Þórðarson. Í ferðanefnd voru kosnir: Kjartan Sæmundsson, Þorsteinn
Þorsteinsson, Ármann Dalmannsson, Eðvarð Sigurgeirsson, alln
endurkosnir og Jónas Hallgrímsson. Félagatala er nú 301.
Fjárhagur:
Tekjur félagsins voru kr. 2280.12, en útgjöld kr. 1527.43. Af
tekjuafganginum var samþykkt að leggja kr. 500.00 í Sæluhússjóð.
Hann var í ársbyrjun kr. 1035.94. Eignir félagsins eru þar að auki
ýmsir munir virtir á kr. 703.00 og í sparisjóði vegna ferðalaga
kr. 175.36.
Skemmtiferðir
s. Í. sumar voru farnar 22, var þátttaka góð, sem sjá má af fjölritaðri skýrslu, sem send hefur verið til félagsmanna. Mesta nýjungin
í þeim ferðum var sumarleyfisferðin 1—9. júlí, um mikinn hluta
Suðurlands. Eins og sjá má af ferðaáætluninni er sumarleyfisferðin í
sumar áætluð um Austurland, og er þess að vænta að í henni verði
vóð þátttaka, því að ekki mun verða ódýrara né skemmtilegra að
lerðast á annan hátt en með F. F. A.
Vegagerð:
Á s. Í. sumri var hafin vegagerð upp úr Eyjafirði í því skyni að
vera bílfært suður á Sprengisand. Naut félagið til þess drengilegrat
aðstoðar margra utanfélagsmanna, bæði úr Akureyrarbæ og Eyjafirði. Því starfi verður haldið áfram í sumar. En frekari greinargerð
er á öðrum stað frá ferðanefnd sem haft hefir á hendi helztu framkvæmdir í því máli.
Árshátíð:
Samkvæmt ósk og samþykkt aðalfundar hefur stjórnin ákveðið að
halda árshátíð í samkomuhúsinu >Skjaldborg< sunnudaginn 10.
marz næstk. Þar verður sameiginleg kaffidrykkja, ræðuhöld, dans og
annar gleðskapur. Til aðstoðar stjórninni við undirbúning hátíðarinnar voru kosnar: Sesselja Eldjárn, Anna Laxdal og Gunnlaug
Baldvinsdóttir. Þess er vænst að félagar fjölmenni, á hátíðina, ekk:
síður en í
ferðalög F. F. A.
Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar. 1940.